Stólpípur í Bónus

Jamm og jæja, það segi ég stundum ef ég hef ekkert að segja eins og núna, og þó ég gæti svo sem viðrað skoðun mína á bloggskrifurum sem leyfa ekki athugasemdir hjá sér, eins og t.D. Jónína Ben mikið rosalega er hún eitthvað aumkunnarverð blessuð manneskjan, það lítur helst út fyrir að hún sé þjökuð af ævarandi gelgjuskeiði eða þannig virkar hún alla vega á mig. Mér finnst vesalings konan vera orðin eins og andlegt rekald, geðvond, kvörtunatsöm og yfir höfuð óskaplega brjóstumkennanleg, vælandi og skælandi yfir Bónusgenginu, manneskjan virðist vera svo pikkföst í hjólförum biturleikans að manni stendur bara ekki á sama. Svo fæ ég nú hálfgerðan kjánahroll þegar ég les "sem er ekki orðið oft" það sem henni dettur í hug að skrifa, eins og t.d. hvað hún varð ótrúlega sár, svekkt og brjálæðislega reið yfir dirfsku blaðamanna DV. Ma ma maaa maaaa...............botnar bara ekkert í þessum mönnum sem voga sér að efast um að þessar stórkostlegu stólpípumeðferðir sem konan býður upp á virki, vita þeir ekki að þær hreinsa görnina á manni? já og kanski eitthvað fleira líka, hver veit. Kanski að maður skelli sér bara til Póllands með Jónínu í allsherjar inniblahreinsun, komi svo heim sæll og glaður með tanduhreint rassg...........W00t Ætli þeir selji nokkuð stólpípur í Bónus?W00t

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða  Þórðar

Veistu!? Ég gæti ekki verið meira sammála þér!

Hlýtur að vera ömurlegt líf, ég meina að dröslast með þennan þankagang 24/7...OMG! Ekki að gera sig fyrir mig. Ekki eftirsóknavert. ekki ekki ekki....

Heiða Þórðar, 2.10.2007 kl. 12:19

2 identicon

hæ þú ert svo fyndin hrikalega er gaman aðl esa bloggin þín ;-)

Kannski er hægt að fá magnafslátt!!

kv.Erla 

Erla Bergs (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 10:14

3 Smámynd: SigrúnSveitó

SigrúnSveitó, 3.10.2007 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband