Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Brjálað rok.

Ég er búin að fá skvísuna mína heim heilu og höldnu, hún kom með strætó úr höfuðborginni áðan og varð ekkert sérstaklega vör við óveðrið, við erum líka öllu vön í þeim efnum hér á Skaganum.

Svo drattaðist ég til að bjarga sumarhúsgögnunum mínum inn í hús og grillábreiðunni, það er barasta aftaka veður á pallinum hjá mér í fyrsta sinn síðan ég flutti hingað, vonandi það síðasta líka þar sem ég flyt eftir nákvæmlega 8 daga.


mbl.is Fólk hvatt til að huga að lausamunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Honum var nær að hlýða.

Jamm, manninum var fjandans nær að vaska upp, ekki vorkenni ég honum. konugreyið var nú bara að gera skyldu sína, ef karlar geta ekki vaskað upp og sinnt öðrum húsverkum geta þeir bara átt von á að vera tuktaðir aðeins til. Og ef þeir ekki láta segjast geta þeir bara verið úti, já þetta er einmitt ástæða þess að ég  bý ein LoL
mbl.is Ákærð fyrir líkamsárás í kjölfar rifrildis um uppvaskið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gasalega er fólk klikkað

Mikið gasalega getur sumt fólk verið klikkað, að láta sér detta í hug að höndla með svona kvekendi.
Hvorki meira né minna en 30 stykki af fremur fráhrindandi dýrum, ég veit ekki hvað ég myndi gera ef ég fyndi kyrkislöngu sprangandi um á klóinu, sennilega myndi ég detta niður steindauð.

mbl.is Kyrkislanga í klóinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég líka.

Það eru greinilega fleiri en ég sem hringja í neyðarlínuna annað slagið, þó hef ég nú aldrei hringt út af kanínueyrum, alla vega ekki enn þá, hringdi samt einu sinni út af hundinum mínum, nei djók! Ég hef hringt í þá nokkrum sinnum og haf þá verið alveg bjargarlaus, eitt sinn hafði ég keyrt upp á einhvern risa drumb á bílastæði og sat þar pikkföst, þeir komu náttla og björguðu mér, nú svo var það þegar ég festi mig á glerhálu svelli í brekku, "á vetrardekkjum" takið eftir því, það skal ósagt látið hvað ég var að þvælast í þessari brekku, mann getur nú villst, svo í fyrravetur sat ég föst í snjóskafli og komst hvorki lönd né strönd, þá sendu þessar elskur nú bara björgunarsveitina mér til hjálpar, svo var það.......Nei annars nú segi ég ekki meir.
mbl.is Hringdi í neyðarsíma lögreglu vegna lögunar kanínueyra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg að missa það.

Er fólk nú alveg að missa það!
Ætli þetta hafi verið dýraverndunarsinnar?
Maður bara spyr sig, næst vilja þessir bjánar örrgla friða kjúklingana.


mbl.is Áhorfendum hryllti við lundaáti Ramsay
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppukjaftæði.

Það mætti halda að allt væri á hraðri leið til Andskotans, ég held að við verðum bara að spara, spara, og SPARA. Kaupa ódýrar jólagjafir og skera niður allan óþarfa, éta svo hrísgrjón í öll mál. Það er búið að vera svo mikið góðæri og við höfum bruðlað í allar áttir, það drepst nú enginn þó hann þurfi kannski að láta eitthvað á móti sér, sleppa bara heimsreisunum, aka um á ódýrum gömlum bílum "nóg er til af þeim í landinu" annars get ég ekki sagt að ég hafi vaðið í peningum í þessu svokallaða góðæri okkar, þannig að ég þarf ekkert að breyta mjög miklu í mínu bókhaldi.
Það eru örugglega mjög margir í sömu sporum og ég, ná rétt að láta enda ná saman og jafnvel ekki einu sinni það, og það hefur ekkert breyst 1 2 og 3.

Auðvitað hlýtur þessi kreppa að gera mestan usla hjá þeim sem hafa ausið peningum í allar áttir og lifað hátt, að minnsta kosti hljóta þeir að þurfa að skera niður eins og við fátæklingarnir, váá! Hljómaði kannski pínu biturt, ég er samt alsæl með lífið og tilveruna þrátt fyrir þetta grautleiðinlega kreppukjaftæði, tek einn dag í einu og nýt hans í botn.

Bæjó spæjó.


mbl.is Lausafjárkreppan versnar hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki fann ég hann.

Eki fann ég hann, sem betur fer.
Ég hef satt að segja ekki fundið fyrir kippum
í mörg ár, þegar ég bjó á Vitateignum fann ég alla kippi,
það var maður sem tjáði mér að það færi eftir legu hússins
og eitthvað sem ég man ekki lengur hvort maður fyndi fyrir skjálftanum.


mbl.is Snarpur jarðskjálfti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morgunhugleiðingar Hófýar

Shit! Hvað ég get verið steikt, var sem sé að vakna með gleraugun á nefinu og jóladúkinn í fanginu í lasy boy stólnum mínum, var nebbla að sauma út í gærkvöldi og hef greinilega steinrotast og það svona svakalega. Já, já, ég er alltaf jafn svöl.

Ég ætla að láta Snorra minn vera heima í dag, hann er ósofinn eins og svo oft áður, ég ætla ekkert að láta það trufla mig þennan daginn, við þurfum hjálp, þetta er búið að vera svakalegt álag í svo mörg ár, erfitt fyrir hann og erfitt fyrir mig. Vona svo innilega að Agnes geti hjálpað elsku Snorra mínum og hún komist að réttri niðurstöðu.

Ég ætla svo að skutlast til Reykjavíkur á eftir og skrifa undir leigusamninginn hjá leiguliðum, flutningar eftir 9 daga, mig hlakkar svo til að flytja inn í nýja íbúð, hún er líka svo rúmgóð og flott. Ég er svo náttla búin að pakka öllu niður nema börnunum mínum og sjálfri mér. Þetta er svona leiðinda biðstaða sem ég er í, ekki alveg það skemmtilegasta þegar ég á í hlut, það hefur nebbla loðað við mig í gegnum tíðina að vera illa haldin af straxveikinni.

Annars, eigið bara góðan dag, það ætla ég að gera.


Ég stend með ljósmæðrum.

Ég stend sko með ljósmæðrum, þvílík lítilsvirðing sem þessari stétt er sýnd eins og reyndar allt of mörgum öðrum stéttum, það er eins og það skipti ekki ýkja miklu máli hvernig við búum að fólkinu sem annast börnin okkar stór og smá. Að fólk skuli vera búið að leggja á sig langt háskólanám til þess eins að þurfa endalaust að berjast fyrir mannsæmandi launum.
mbl.is Samningar náðust ekki í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vááá! Gaman.

Vááá! Gaman að þessu, ég átti dúkku númer fjögur í annari röð og á reyndar enn, dóttir mín lék sér með hana á sínum yngri árum, hún skírði hana Grímu vegna þess að henni fannst hún eitthvað hálf rytjuleg og sjúskuð enda hafði dúkkudruslan svo sem munað fífil sinn fegri, merkilegt hvað ég get átt suma hluti lengi og þótt vænt um þá, þessa tilteknu dúkku fékk ég í afmælisgjöf frá mínum yndislegu foreldrum.
Vona að það fáist viðunandi húsnæði fyrir þessar flottu dúkkur.

mbl.is Brúðu- og leikfangasafn vantar heimili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband