Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Skipulagt kaos.

Jæja loks er tími til að slaka á og blogga smá, stundum er allt vitlaust að gera og sveim mér þá ef ég tek ekki stærri bita en ég get tuggið þessa daganaGetLost Lofa upp í ermina á mér hvað eftir annað. Til dæmis er ég búin að bóka mig á þremur stöðum kl eitt á föstudaginn, gott hjá mér! Ekki það ég telji mig eitthvað ómissandi, kanski þarf ég bara að skipuleggja mig örlítið betur. En mér finnst að mér eigi nú að fyrirgefast svona smotterí þar sem ég er snillingur í að hafa mjög gott skipulag á kaosinu. Annars er ég svo dæmalaust glöð með að sumarið sé komiðCool Skrapp með vinkonu upp í sveit áðan og komst bara í svona útilegufíling, eða sveitahúsafíling "hvað sem það nú er" allavega er ég orðin soddan kveif að ég nenni ekki að sofa í tjaldi, tjaldvagni , fellihýsi eða hvað þetta nú allt heitir, ég vil bara sofa í rúmi í húsi og hana nú. En sú var nú tíðin að ég vílaði ekki fyrir mér að sofa í örþunnu tjaldi í 1. gráðu hita enda var ég fasta gestur á útihátíðum landsins. Já já þeir tímar er löngu liðnir sælla minningaWizard ég get svo sem ekki sagt að ég sakni þeirra sérlega mikið. En sumarið er tíminn, það er á hreinu ég elska náttúruna, gróðurinn, og yndislegu fuglana, eða þá dýrin, hestana beljurnar og bara allt, sennilega komin tími á að enda núna, læt fylgja klausu úr Sölku Völku sem mér finnst svo falleg.

Ekkert á jörðinni er eins yndislegt og sönn ást milli pilts og stúlku í góðu veðri um nótt á vori, þegar hestarnir eru sofnaðir í túninuHeart Bara fallegt. Góða nótt dúllur og sofið rótt.


hvítasunnumorgun

Kærleikurinn er tungumál þagnarinnar, kærleika þarf ekki að tjá með orðum. Þú getur skilið hann og tekið á móti honum án orða. Þú skilur hann með hjartanu en ekki huganum, það skiptir ekki máli hvaðan við erum, við getum alltaf borið kærleika í brjósti og látið hann í ljós í algjörri þögn. Ég er svo full af kærleika og mér finnst ég lifa svo innihaldsríku lífi, ég sé fegurð kraft og gleði alls staðar í kringum mig. Það er svo dásamlegt hvernig lífið er orðið áreynslulaust og gasalega skemmtilegt "full andleg segja kanski sumir" en sama er mér svona líður mér nebbla akkúrat núna. InLove  Litli sólargeislinn okkar var í næturpössun hjá okkur"ömmunni og afanum" ég held að hann kalli það besta fram í okkur báðum, við erum svo fullkomlega heilluð af þessu dásamlega barni. Mín var sko komin í göngutúr kl. hálftíu í morgun með barnavagn og hund í bandi, systa mín varð alveg forviða þegar ég " morgunhænan " hringdi í hana rúmmlega níu á hvítasunnumorgni og spurði hvort hún væri til í göngutúr FootinMouth  Hva er ekki allt í lagi spurði hún! Ég hélt nú það, eins og ég sé einhver svefnpurka ha, sei sei nei ég var búin að vera á fótum síðan sex og búin að afreka ýmislegt sko. En hún systa mín var auðvitað líka búin að afreka ýmislegt og löngu komin á fætur eins og venjulega, ekki nokkur leið að ná henni í bólinu, hún neitaði heldur ekki göngutúr frekar en endra nær, alltaf jafn hress og dugleg þessi elska. Við skunduðum í rjúkandi heitt morgunkaffi og ristað brauð til mömmu og pabba. Ég vex aldrey upp úr því að þykja notalegast að fara í drekkutíma til mömmu og pabba. Pabbi lagar líka besta kaffið, sterkt og gott ekki spurningHeart  Jæja dúllur nú er komin háttatími hjá mér, ég er búin að vaka sooo lengi, orðin þreytt og sibbin, góða nótt, sofið róttTounge

5 stjörnu sjúkrahús

Jæja þá er þessi dagur að kveldi komin. Ég var rétt að enda við að setja neglur á tilvonandi tengdadóttur mína, bara gaman af því. Ég var svo lánsöm að fá að gista á 5 stjörnu hóteli síðastliðna nótt, eða svona næstum því ég svaf sum sé á sjúkrahúsi Akranes í rafmagnsrúmi og allt. Ég var samt ekki sjúklingur og ekki starfsmaður heldur, ég var sko bara gestur og þvílík þjónusta sem maður fær alltaf hjá þessu yndislega starfsfólki þarna. Dóttir mín sem er svo sem ekkert barn lengur, heldur 16 ára unglingur þurfti að liggja inni eina nótt og þar sem henni fannst svo notó að hafa mömmuna sína lúllandi í næsta rúmi við sig var það auðsótt mál. Ég hef nokkrum sinnum þurft að leggjast inn á SHA og alltaf fengið frábæra ummönnun, ég fæddi líka tvö af börnum mínum þar en þann elsta fæddi ég á lansanum, og það er sko ólíku saman að jafna get ég sagt ykkur. Starfsfólkið á SHA á heiður skilið fyrir hvað það er frábært allt upp til hópa. Jæja ég ætla að horfa á restina af fegurðarsamkeppninni. Góða nótt og sofið rótt.Halo

Hvar er sumarið.

Vá ekki alveg að standa mig í blogginu, það hlítur að vera svona mikið að gera hjá mérTounge Hvað er annars með sumarið? Ótrúlegt að júní sé rétt handan við hornið, frekar eins og jólin séu á næsta leiti. Eins gott að ég fer á Spán eftir tvo mánuðiCool Ég get þó huggað mig við það ef sumarið fer fram hjá Íslandi í ár. Annars trúi ég því að það komi í næstu viku, um að gera að vera pínu bjartsýn. Þegar sólin skín á gleði mín sér engin takmörk, það verður einhvernvegin allt svo auðvelt og skemmtilegt svo verður allt svo óendanlega fallegt, eða það finnst mér. Aftur á móti í rigningu verður allt svo ömurlega drungalegt og grátt, þá held ég að sálin verði pínu krumpuð. Ég reyni nú samt að láta ekki veðrið stjórna mér, en það hefur vissulega áhrif. Jæja svo ég vaði nú úr einu í annað, ef ég ætti eina ósk þá myndi ég óska mér að inni á baðherberginu mínu væri einhverskonar maskína sem tæki notuð handklæði þvæði, þurrkaði og hengdi þau síðan upp, þá myndi líka vera aðeins eitt handklæði á mann, maskínan yrði að veiða handklæðin upp í sig sjálf því annars kæmi hún ekki að neinu gagni á mínu heimili, unglingarnir mínir hljóta að svitna óeðlilega mikið, alla vega miðað við baðferðir þeirra, ekki sjaldnar en tvisvar á dag, þrisvar ef mikið stendur til. Svo er nú aldeylis ekki hægt að láta eitt handklæði duga daginn og alls ekki hægt að nota sama handklæði tvisvar. Þvottavélin mín fær aldrey Whistlingstundlegan frið ekki þurrkarinn heldur, meira að segja er ég endalaust að þvo gallabuxur, svo skilja blessaðir krakkarnir ekkert í að fötin þeirra upplitist meira en annaraWink En þau vitkast örugglega með árunum þessar elskur þangað til nöldra ég yfir þessu óþolandi þvottastússi. Best að koma sér í koju svo ég verði nú spræk í þvottahúsinu á morgunInLove.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband