Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Frumskógur

Þetta er nú meiri frumskógurinn, allt svo útlendingastofnunin, mér skilst að maðurinn eigi barn hér á landi og hafi unnið heiðarlega fyrir sér, af hverju fær hann þá ekki að vera hér í friði eins og svo margir aðrir útlendingar? Þvílíkt endemis rugl alltaf hreint í þessum málum, utanríkisráðherra má sjálfsagt ekkert vera að því að sinna svona málum í sínu heimalandi, enda allt of upptekin við að glenna sig út um heim allan, skrítin pólitík segi ég nú bara, manneskjan rembist við að fá aðrar þjóðir til að semja frið en sinnir lítt um sína eigin þjóð, fuss og svei.
mbl.is Mótmæla meðferð á flóttamanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er málið?

Hvað er eiginlega málið? Allt reynir fólk að selja
og að sjálfsögðu eru einhverjir nógu klikkaðir
til að kaupa, að selja sálu sínu er eitthvað
sem ég skil ekki, þá hlýtur að vera hægt að
selja skapið sitt líka og gáfur sínar,
þá reikna ég með að maður geti líka selt heimsku sína
ég ætla einmitt að selja heimsku mína hæstbjóðenda,
það er verst hvað hún yrði ódýr því ég á náttla lítið
sem ekkert af henni, ekkert nema endalausar gáfur í mínum haus og þær tími ég nú ekki að selja.

mbl.is Fékk 300 þús. fyrir sálina sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju flotta kona.

Til hamingju með daginn flotta kona, því miður fer svona kvenskörungum fækkandi, ég elska svona konur, það er eitthvað svo sjarmerandi við þessar elskur, ekkert væl enda búnar að lifa tímana tvenna og hafa pottþétt afrekað eitt og annað um ævina sem okkur nútímakonunum ekki svo mikið sem órar fyrir, það var aldeilis ekki mulið undir kvenfólkið á þessum árum, handþvottur, prjónaskapur, saumaskapur fyrir nú utan allt annað sem þessar konur höfðu á sínum herðum, eina "fríið" sem þær fengu var sængurlegan.....Já mér finnst að það ætti miklu frekar að segja grunnskólabörnum frá fólkinu sem var uppi fyrir 100-150 árum, skrifa kennslubækur um þetta tímabil í stað þess að vera sífellt að tönglast á einhverjum langbrókum og ofbeldisseggjum aftan úr grárri forneskju, mér finnst algjör óþarfi að vera að fylla börnin af einhverjum lyga og grobbsögum um forfeður okkar sem ekki voru beint til fyrirmyndar ef við göngum út frá því að Íslendingasögurnar séu sannar sem mér finnst reyndar ekki mjög trúlegt, samkvæmt þeim voru börn á leikskólaaldri farin að strádrepa fólk, ekki alveg bókmenntir að mínum smekk.
mbl.is „Manni leið bara eins og glæpakvendi"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sól, sól, sól!

Yndisleg tilhugsun að sú í gula kjólnum ætli að heimsækja okkur um helgina, Írskir dagar, sól og blíða og endalaus dásemd framundan.... Bara frábært, svo er um að gera að vera bjartsýnn og vona að hátíðin fari þokkalega friðsamlega fram, við ætlum að hafa grillveisluna á laugardaginn en ekki föstudaginn eins og flestir aðrir, allir að vinna til 6 eða 7 svo það er miklu þægilegra að færa herlegheitin aðeins til. Svo ætla ég að vera barnapía á laugardagskvöldið svo liðið komist nú á lopapeysuballið, ég hef ekki enn látið verða af því að mæta á umrætt ball, kannski einhvertímann seinna, hver veit? Það er svo mikið um að vera hérna hjá okkur um helgina að mann má hafa sig allan við að dandalast út og suður, geggjað mikið fjör á Skaganum allllla helgina.. Wizard 


mbl.is Hitabylgja um helgina og víða 25 stiga hiti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eru hryðjuverkamenn?

Hvað er unnið með því að jafna heimili mannsins við jörðu?
Því ekki að refsa manninum og láta börnin hans og konuna hans í friði? Nær væri að aðstoða fjölskyldu hans sem ekki hefur gert neitt af sér? nema þá að vera fjölskylda hans sem virðist gera þau að glæpamönnum, ég þoli ekki svona óréttlæti, það er því miður allt of oft sem menn tapa sér af hermdarþorsta og hefna sín á saklausu fólki, ég get ekki séð að forsætisráðherra og varnarmálaráðherra Ísraels séu eitthvað skárri en réttir og sléttir hryðjuverkamenn, bara sorry......Ekki skrítið að allt sé í rugli og hinn almenni borgari beri ekki mikla virðingu fyrir mannslífinu, ekki eru skilaboð yfirvalda til fyrirmyndar í þessum heimshluta.
Réttlætiskennd er greinilega ekki hátt skrifuð hjá þessum gaurum, drepa og skemma það er það sem þeir kunna og hafa gaman af, því miður. 

mbl.is Hús Palestínumanns jafnað við jörðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimskur maður?

Ótrúlega geta menn verið siðlausir og nautheimskir, haa var ég ekki á löglegum hraða? Greinilegt að þessi bjáni er algjörlega laus við allt sem heitir heilbrigð skinsemi, en eins og konan sagði: Enginn er eins blindur og sá sem vill ekki sjá.
Vonandi sér hann að sér þegar áfengisvíman rennur af honum og reynir að lifa þannig að útfararstjórinn verði líka hryggur þegar hann kveður. 


mbl.is Ölvaður á 156 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stuttur þráður.

Já þráðurinn er misstuttur eða mislangur í mannfólkinu, að nenna að æsa sig yfir svona smáræði er fyrir ofan minn skilning,
hvað er meint með að gaurinn hafi aðeins bragðað áfengi en ekki ástæaða til að skoða það nánar?
Einnig finnst mér skrítið að það eigi eftir að ákveða HVORT brugðist verði við upphlaupi mannsins með einhverjum hætti.
Að ógna öðrum með hnífi, já ég hefði nú haldið að það væri refsivert, en hvað veit ég svo sem? Öll erum við fáfróð, bara á mismunandi stigum.

mbl.is Ógnaði ökumanni eftir árekstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfbjargarviðleytni.

Um að gera að reyna að bjarga sér Wink

Áfengi er eins og rökvísi- missir jákvæð áhrif sín
sé hún tekin í of stórum skömmtum. Tounge


mbl.is Reyndi að róa Eyrarsundið eftir sumbl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki mannleg.

Það er sem ég segji, mannvonskan og geðveikin virðast eingin takmörk þekkja, þvílík og önnur eins bilun! Það er alveg ótrúlegt hvað fólk getur látið sér detta í hug og þar að auki framkvæmt viðbjóðinn, ég get einhvernvegin ekki trúað öðru en þessi manneskja eins og allt of margir aðrir sé verulega brengluð í hausnum, eiginlega bara ómennsk......Það hlýtur að vera að svona fólk sé með eitthvað annað en mannlegt eðli, það er að minnsta kosti mín sannfæring.
mbl.is Skar barn úr móðurkviði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helsjúkir og illa innrættir.

Ég get svo svarið það! Hvað er upp í hausnum á svona liði eiginlega? Og hvað í veröldinni getur þeim gengið til? Að ætla sér að slasa börn sér til skemmtunar! mér finnst þetta svo sjúkt að ég get með engu móti gert mér í hugarlund hvers konar manneskjur eru þarna að verki, ég tel samt næsta víst að þessir vitleysingar hljóti að vera meira en lítið andlega fatlaðir á höfði og ættu ekki undir nokkrum kringumstæðum að ganga lausir út í þjóðfélaginu.
mbl.is Gengu berserksgang í Laugardal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband