Tjellingin mætt á svæðið.

Jæja tjellingin bara mætt á bloggið! Eftir góða pásu er ég sum sé mætt á svæðið aftur, bara gaman af því. Annars er nú ekki ýkja mikill tími sem ég hef í sollis lagað þessa dagana. Flutningar framundan og bara verið að pakka og sansa. Ég fór með Polla minn í geldingu í gær, hann er eitthvað hálf aumur með kraga náttla og ég þarf að mata hann og gefa honum vatn með skeið, þar sem hann er ekkert voða sáttur með kragann. Við mæðgurnar ætlum að skunda í höfuðborgina að erindast snöggvast svo á ég von á frumburðinum og ömmusnúllanum í gistingu í kvöld, það tekur sko tíma að venjast því að þau séu flutt í borgina. Sigrún komin í háskólann þessi dugnaðar stelpa og litla fjölskyldan búin að koma sér fyrir á stúdentagörðunum í heilum 47 fermetrum. Ókey bæ bæ.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband