Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Hvað er hamingja.

Hamingjusöm eða ekki hamingjusöm, hvað er hamingja? Örugglega eitthvað verulega gott, en erfitt að skilgreina hana, það sem gerir einn hamingjusaman gerir kannski annan óhamingjusaman. Er það ekki soldið undir okkur sjálfum komið hvernig okkur líður? Ef við erum fús til að sjá það góða í lífinu og einbeita okkur að því líður okkur vel, en ef við leitum að því illa og neikvæða getum við ekki búist við glimrandi hamingju.

Því ekki að hafa það fyrir venju að nálgast lífið í réttum anda, glaðlega, með eftirvæntingu og vera algjörlega sannfærður um að aðeins það besta sé fyrir þig? Þegar viðmót okkar og viðhorf er rétt og við höfum fulla trú á okkur sjálfum, er ekkert sem við getum ekki gert í þessu lífi.

Fegurð lífsins er alls staðar í kringum okkur, við þurfum aðeins að opna augun og líta í kringum okkur. Við getum ekki vaxið og þroskast eðlilega ef viðhorf okkar er neikvætt og við sjáum bara erfiðleika og hindranir í lífinu. Leyfum kærleikanum að flæða frjálsum í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur, þá verður lífið svo miklu skemmtilegra.

Svo gott að vera jákvæður og bjartsýnn á þessu indæla janúarkvöldi.


mbl.is Hamingja á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öfga rugl

Fróðlegt að vita hvað friðarsinninn gerir í framboðsmálum, ég get nú ekki sagt að mér þyki mikið í gaurinn varið, ég sé ekki fyrir mér að  eins öfgasinnaður maður eins og Ástþór virðist vera hafi eitthvað í forsetastól að gera. Það sem mér finnst fáránlegast við svona kjánaframboð er peningasóunin, mér finnst að það ætti að taka meðmælendalistann til rótækrar endurskoðunar svo svona labbakútar geti ekki leikið sér með peninga skattgreiðenda, það ætti að gera meiri kröfur til frambjóðenda, lengja meðmælendalistann að minnsta kosti.


mbl.is Segist styðja hvern þann sem taki að sér friðarmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta ætlar ekki að ganga.

Þetta ætlar ekki að ganga farsællega hjá henni Britney, ekki trúi ég nú að hún hafi ætlað að vinna sonum sínum mein. Konan þarf að fá frið til að ná sér út úr fíkninni. Ég sárfinn til með henni núorðið, þó seint verði hún ædolið mitt. Það er pottþétt ekkert auðveldara fyrir hana að sjá á eftir börnunum sínum en öðrum sem í því lenda. Frægðin getur orðið mörgum fjötur um fót, það besta sem Britney gerði núna væri einfaldlega að hún gæfist upp, færi í langa meðferð, tæki sér þann tíma sem hún þarf. Kæmi svo EDRÚ og flott, með jákvætt hugarfar að meðferð lokinni, sýndi svo fram á að henni væri alvara, þá held ég að hún myndi endurheimta syni sína aftur.
mbl.is Óttuðust að Britney myndi vinna sonum sínum mein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólin á bak og burt.

Þá eru jólin búin samkvæmt dagatalinu, ég er búin að hengslast við að pakka niður jólaskrauti í allan dag, með hangandi hendi. Ég verð alltaf jafn hissa á magninu þegar kemur að niðurtekningu skrautsins. Auðvitað bætist við um hver jól, svo tímir maður fáu að henda af gamla draslinu af því að það eru svo skemmtilegar minningar tengdar jólaskrauti.

Mér finnst samt sem áður ekkert verða tómlegt þó glingrið hverfi ofan í kassa, læt líka seríur sem eru ekkert jóló sjá um ljósastemminguna fram á vor. Það er bara kósí á dimmum vetrarkvöldum.

Best að pilla sig í rúmið, svo ég vakni til að hjálpa stelpunni minni í blaðaútburði sem fram fer á ókristilegum tíma.

Góða nótt og sofið sætt og rótt HeartSleeping


Af hverju?

Af hverju ætli fólk stoppi ekki? Ég trúi eiginlega ekki að það sé vegna mannvonsku, mig langar svo að vita hvað fer í gegnum hugann á fólki sem ekur fram á slasaðan mann án þess að hjálpa honum. Skyldi það vera hræðsla sem aftrar fólki að stoppa? Og þá hræðsla við hvað? Eða er fólk almennt orðið svona tilfinningasljótt og hugsar, ææi ég nenni ekki að stoppa, það gerir það örugglega einhver annar. Mér finnst eitthvað svo óhugnanlegt að þetta sé staðreynd, ég á líka svo erfitt með að melta svona lagað, ég meina! maðurinn var alblóðugur og þetta var um hábjartan dag, þannig að það hefur varla farið fram hjá neinum að hann þurfti á aðstoð að halda. Svona er kannski bara Ísland í dag.
mbl.is Margir óku framhjá slösuðum manni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mann má bara ekki neitt.

Ekki hef ég trú á áramótaheitstrengingum, mér finnst áramótaheit eitthvað svo dæmd til að mistakast. Ég aftur á móti hef meiri trú á heitstrengingum á öllum öðrum dögum ársins, bara ekki 1. janúar. Til dæmis hætti ég að reykja 15. janúar fyrir tveimur árum, og er enn hætt. Ótrúlegt! En dagsatt Smile Svo byrjaði ég í átaki 2. janúar í ár, engan sykur inn fyrir mínar varir meir GetLost og ýmislegt annað, bæði erfitt og drepleiðinlegt. Er það ekki furðulegt að ég skuli vera að smá tína út allt sem gott er í mínu eigin lífi? Hvað geri ég svo þegar ekkert er orðið eftir til að taka út? Varla ástæða til að hafa áhyggjur af því, það á örugglega einhver snillingurinn eftir að sannfæra mig um að enn verði ég að skera niður lystisemdir lífsins, það er að segja ef ég vil ekki vera orðin stórsködduð á sál og líkama langt fyrir aldur fram.

Nú er svo fyrir mér komið að ég held dauðahaldi um þessa örfáu kaffibolla sem ég skammta mér yfir daginn. Ég tek ekki í mál að láta samvisku mína rífa af mér kaffið eins og allt annað Errm það er svo átakanlega sorglegt að ég get engum kennt um þessa innrás í mitt auma líf nema mér sjálfri.

Hömluleysi mitt á öllum sviðum hefur ósjaldan komið mér í bobba, ekki get ég lift glasi í góðra vina hópi mér og öðrum að skaðlausu, þannig að það er hreint ekki í boði og hefur ekki verið lengi. Nú, að fá sér kaffi og sígó er nú ekki eitthvað sem mar leyfir sér lengur, eins og það var GOTT. Og framvegis verð ég að láta mér nægja að naga gulrót í stað þess að gúffa í mig súkkulaði og öðru góðgæti. Ja þvílíkur meinlætalifnaður sem býður mín á komandi árum. Það er ekki laust við að það örli á pínulítilli sjálfsvorkunn hjá minni þessa dagana, og lái mér hver sem vill.

Best að fara að fá sér gulrót eða hreðku, nammi namm.Tounge


Fégræðgin er mikil.

Loksins! Þessi umræða er þörf svo mikið veit ég. Það hefur of lengi verið farið illa með unga krakka sem vinna í verslunum. Að láta 14 ára krakka standa á kassa í átta klukkutíma með lágmarkspásum er ekki forsvaranlegt, svo ekki sé nú minnst á launin sem blessuð börnin bera úr býtum. Ekki hafa þau nein réttindi, ég veit ekki til að krakkar undir 16 ára séu tryggð að neinu leiti. Dóttir mín var að vinna í verslun þegar hún var 15 ára, hún þurfti meðal annars að mæta á starfsmannafundi eftir vinnutíma, eða á kvöldin einu sinni í mánuði og fyrir það fékk hún ekkert borgað, hún þurfti að koma sér til Reykjavíkur á eigin kostnað, við búum á Akranesi. Þeim var sagt að þær yrðu að mæta á starfsmannafundina annars yrðu þær bara reknar. Það var endalaust verið að hringja í hana, meira að segja þó vitað hafi verið að hún var í skólanum, endalaust kvabb um að hún kæmi í vinnu aukalega við það sem hún réð sig til. Starfsmannafundirnir gengu aðallega út á það að skamma krakkana fyrir eitt eða annað, kröfurnar til þeirra voru sem sé eins og um fullorðna einstaklinga væri að ræða, það er að segja þegar það var þeim sem réðu í hag, ég gæti tekið fleiri dæmi því af nógu er að taka, nenni hins vegar ekki að gera það að sinni. Það vita jú allir sem hafa einhverja smá þekkingu á réttindum starfsfólks í stéttarfélögum að þessi framkoma yfirmannanna er kolólögleg, þessir ungu krakkar eru ekki í neinu félagi svo þau geta bara sætt sig við ósómann. Eitt er alveg víst af fenginni reynslu að aldrei myndi ég samþykkja að barn undir 16 ára aldri færi í vinnu hjá þessum þrælabúðum. Að mínu mati er þetta barnaþrælkun og ekkert annað. Mér finnst sjálfsagt að kenna krökkum að vinna, lærði það ung sjálf, en það þarf að koma fram við þau eins og fólk, sem þau eru, en ekki eins og þræla. Þeir sem eiga þessar verslanir eru ekki alveg á flæðiskeri staddir, ekki skiptast þessar eignir á marga eins og allir vita, allt sameinað í sama pottinn. Mér finnst siðgæðinu vera verulega ábótavant hjá peningaplebbunum, gefa sig út fyrir að vara vinir litla mannsins og með lægsta vöruverðið, en reka búðirnar sínar með óhörðnuðum unglingum sem engan vegin eru fær um að standa undir kröfunum og álaginu sem á þá er lagt. Ja fyrr má nú vera fégræðgin segi ég nú bara. Þetta átti sko alls ekki að vara svona langt, en stundum tekur ritræpan af mér öll völd.
mbl.is Ítrekað brotið á börnum á vinnumarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fattar hlunkurinn ekki skilaboðin?

Ameríkanar eru baradúllur! Ef að ég yrði tvírukkuð fyrir hlaðborð vegna frjálslegs vaxtarlags myndi ég kannski fara í eitthvað sem heitir sjálfsskoðun eða öllu heldur sjálfsrannsókn, aðeins sonna að kanna hvort eitthvað sé ekki í lagi með matarvenjur mínar áður en ég ryki upp til handa og fóta, alla vega finnst mér alveg brjálæðislega pínlegt að rjúka í blöðin með skandalinn. Og kvarta og kveina yfir því að fá ekki að gúffa í sig mat á við fjóra meðal fituhlunka, á verði eins. Svo kórónar Breiðrassinn hneykslun sína með því að segja, Ég, ég, sem er ekki nema 130 kíló.

Veitingastaðurinn á mína samúð, hrikalega pirrandi þegar fólk ætlast til að aðrir haldi þeim uppi af því að þeir eru búnir að éta sjálfan sig út á gaddinn.


mbl.is Úthýst af veitingastað fyrir að borða of mikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mínar eru engu minni

Sumir deyja ekki ráðalausir eins og sannaðist á þessu heimili. Þeir voru snöggir að hugsa þessir strákar og eiga heiður skilinn. Eigandi nærbrókanna er nú samt aðal hetjan í þessum hildarleik, bæði fyrir að nenna ekki að brjóta saman tauið sitt og svo náttla fyrir að vera rassstór. Ég hef ekki enn komið í verk að fá mér eldvarnateppi, þrátt fyrir góðan ásetning að þá hefur það bara einhvernvegin farist fyrir fram að þessu, ég er nú bara að spá í að hengja naríurnar mínar við eldavélina, sem eru sko ekkert minni en þeirrar ensku, svei mér þá Tounge. Ég fékk nebbla alveg snilldarhugmynd, ég stefni á að minnka nærbrókarstærð mína á nýja árinu hægt og bítandi, og þegar vart verður við árangur skipti ég stóru brókunum út fyrir aðeins minni, og svo bara koll af kolli þar til ásættanlegri stærð verður náð, þetta sístem held ég að verði ákaflega hvetjandi, svona nokkurs konar umbun, eða, eða, eða, já eitthvað solis.LoL
mbl.is Eldur slökktur með stórum nærbrókum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og ég líka.

Ókey þá! Fyrst Kim Kardashian opinberar furðulegar matarvenjur sínar ætla ég líka, ég ætla sem sagt að hætta að borða fansbrauð með tómatsósu............ Nei annars ég er löngu hætt því "svona næstum" En sú var tíðin að ekkert í veröldinni gat toppað þennan eftirlætisrétt minn. Já það þurfti nú ekki mikið til að gleðja mig á mínum bernskuárum. Og ekki þarf fræga fólkið að reka oft við til að fretið komist í heimspressuna. Þvílík og önnur eins stórfrétt, manneskjan bara hætt að borða djúpsteikt Oreo kex, eins gott og það nú er.


mbl.is Hætt að borða djúpsteikt kremkex
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband