Mínar eru engu minni
3.1.2008 | 08:39
Sumir deyja ekki ráðalausir eins og sannaðist á þessu heimili. Þeir voru snöggir að hugsa þessir strákar og eiga heiður skilinn. Eigandi nærbrókanna er nú samt aðal hetjan í þessum hildarleik, bæði fyrir að nenna ekki að brjóta saman tauið sitt og svo náttla fyrir að vera rassstór. Ég hef ekki enn komið í verk að fá mér eldvarnateppi, þrátt fyrir góðan ásetning að þá hefur það bara einhvernvegin farist fyrir fram að þessu, ég er nú bara að spá í að hengja naríurnar mínar við eldavélina, sem eru sko ekkert minni en þeirrar ensku, svei mér þá . Ég fékk nebbla alveg snilldarhugmynd, ég stefni á að minnka nærbrókarstærð mína á nýja árinu hægt og bítandi, og þegar vart verður við árangur skipti ég stóru brókunum út fyrir aðeins minni, og svo bara koll af kolli þar til ásættanlegri stærð verður náð, þetta sístem held ég að verði ákaflega hvetjandi, svona nokkurs konar umbun, eða, eða, eða, já eitthvað solis.
Eldur slökktur með stórum nærbrókum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.