Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007
Bara banna allt saman?
31.12.2007 | 06:22
Miðnæturbomban innkölluð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nú er glatt
31.12.2007 | 06:06
Nú er ég klædd og komin á ról, já já alltaf er mar nú jafn morgunhress..........NOT......Hvað um það, ég ætla að hjálpa snúllunni minni að bera út fréttablaðið, af því að veðrið er svo ógislega púkó. Síðasti dagur ársins, þá gera margir svona uppgjör eða annál, ég nenni því samt ekki. Ekki að svo stöddu alla vega, þessum síðasta degi ársins ætla ég að verja í að elda risastóran kalkún, það eru miklar sérímoníur hjá mér, og athöfnin er nánast heilög við kalkúnar hanterringuna. Ég sný honum í tíma og ótíma, sprauta hann og smyr, þetta tekur um það bil 8 klukkutíma, það er líka alveg sérstakur stemmari yfir þessu öllu saman. Þessu er svo ekki lokið fyrir mér fyrr en ég heyri gesti mína umma yfir því hvað hann sé lang lang bestastur
Já já svona er maður nú klikkað'ur, en það er nú samt betra að vera klikkaður heldur en leiðinlegur, ekki satt?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þetta líst mér vel á
31.12.2007 | 05:39
Slæmar minningar tættar í sundur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Smánarblettur
30.12.2007 | 03:27
Það má sjálfsagt endalaust deila um hvar á að bæta og hvar á að skerða, þó held ég að Guðlaugur sé að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur með því að hækka komugjöld elli og örorkulífeyrisþega. Einnig myndi ég vilja sjá breytingar í sálfræðigeiranum, mér skilst reyndar að til standi að gera eitthvað í þeim málum, og hefði átt að vera löngu búið. Einn tími fyrir barn "og sjálfsagt fullorðna líka" kostar 7.500 kr. Mörg börn þurfa að koma í hverjum mánuði í sálfræðiviðtal, það gerir 90.000 yfir árið, og það eru því miður margir sem hafa einfaldlega ekki efni á þessari þjónustu, það er meira en helmingi ódýrara að fara til barna og unglinga geðlæknis, en þeir hins vegar vísa í mörgum tilfellum á sálfræðingana. Tryggingastofnun tekur engan þátt í sálfræðikostnaðinum eins og málin standa akkúrat í dag. Það er svo sannarlega löngu tímabært að heilbrigðisyfirvöld fari að feisa og viðurkenna andlega sjúkdóma, börn og unglingar veikjast líka af slíkum sjúkdómum eins og dæmin sanna, BUGL er í fjársvelti og hefur alla tíð verið, að fárveik börn og unglingar skuli þurfa að bíða á skammarlega löngum biðlistum eftir hjálp er smánarblettur á velferðaríkinu Íslandi.
Börn greiði ekki komugjöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Skemmileggjarar
30.12.2007 | 02:31
Skemmdarverk með flugeldum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Andvaka
30.12.2007 | 02:17
Alveg ferlegt hvað landinn er sprengjuóður og hvað það eru margir dagar sem maður verður helst að halda hundunum sínum inni, og auðvitað köttum líka. Blessuð dýrin hafa ekki hugmynd um hvað er í gangi á meðan verið er að frussa þessu dóti upp í loftið. Ég vil nú samt ekki gefa honum Polla mínum róandi, hann er svo lengi að jafna sig á ´soliss löguðu, finnst það hreint ekki á hann leggjandi. Ég sit barasta með litla snúllan minn í fanginu inn á litla klói, því þar er enginn gluggi, að minnsta kosti meðan mestu lætin ganga yfir.
Tja ætli mann reyni ekki að sofna í hausinn á sér.
Góða nótt og sofið rótt kæru vinir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Brjálaða Gamlárskvöld
29.12.2007 | 00:00
Jæja þá styttist árið óðum í annan endann, sprengjusérfræðingar stórir og smáir eru farnir að hita upp fyrir kvöldið mikla. Allt á að vera svo æðislegt og allir ætla sko að sletta hressilega úr klaufunum, en því miður verður raunin oft önnur, síðasta kvöld ársins stendur sjaldnast undir væntingum. Sumir eru orðnir helst til málgefnir fyrir skaup og blaðra tóma steypu yfir sjálfu áramótaskaupinu sem svo aftur verður til þess að þeir sem enn eru þokkalegir missa af fyndnu bröndurunum, ef einhverjir eru, þá sturta þeir bara alminnilega í sig svo þeir geti nú sagt þeim málgefnu ærlega til syndanna.
Svo upphefjast miklar rökræður um eitthvað sem engu máli skiptir, raus, raus, raus, tuð, tuð, tuð, allir orðnir moðfullir og drepleiðinlegir. Hurru hva ert þúúú að rífa kjafft þanna vitliþingurinn þinn? Þegiðþú nú þanna þilliibyttan þín og ðeyndu baða að veða ekki alltaf að eyðileggja ðþemminguna anna ðþíflið itt.
Váááá! Klukkan allt í einu orðin tólf, allir út að sprengja flottu og rándýru terturnar sínar, Langerði Hallbrók og vinkonur hennar, svo náttla bara heldur djammið áfram eitthvað fram á nýjársdag og sonna.
Nei nei, enga svona vitleysu takk, alla vega ekki hjá minns, við ætlum sko að skemmta okkur án söngvatns og leiðinda þessi áramótin, við höfum hugsað okkur að gúffa í okkur kalkún með tilheyrandi, svo kemur Systan mín með sína heimsfrægu áramótabombu sem við slöfrum í okkur, smjatt, smjatt, slurp, slurp, slurp, uppskriftin er fjölskylduleyndarmál svo ég get ekki gefið hana upp enda væri hún þá ekki leyndarmál, en ég get sko sagt ykkur það að góð er hún, hún er eiginlega ósvífnilega góð og flott í laginu , hún er svona eins og Hallgrímskirkja að lögun en ekki alveg eins löng, samt næstum því.
Mig langar mest til að kyssa essa köku, af því að hún er bara bestust og langflottust. Skyldi maður vera í lagi? svaka skrif um eina fo..... köku. Nei nei ég er ekkert í lagi, og hef aldrei reynt að halda því fram........
En góða nótt og sofið rótt, kæru vinir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Varla Kolla
28.12.2007 | 13:51
Fegursti femínistinn valinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Moggabloggarar versla ekki á útsölum
28.12.2007 | 09:48
Þrjár konur féllu í yfirlið á útsölu Next | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ölmusulufsur
27.12.2007 | 13:05
Lífeyrisþegar fá greiðsluáætlun í janúar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)