Best að segja sem minnst.

Ég ætti nú að hafa vit á að þegja um mín hlaup, ég er nebbla svo fáránlega auðtrúa að það er ekki einu sinni fyndið, held líka að ég sleppi að segja frá öllum fréttunum sem ég trúði eins og nýju neti, ég átti líka svo erfitt með að muna eftir því að það væri einmitt 1. Apríl í dag. Tounge
mbl.is Varstu gabbaður í dag?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hláturinn lengi lifi.

Jæja þá er maður bara komin í koju, búin að erinda ýmislegt í dag, þurfti að skottast til Reykjavíkur og sonna. Svo fórum við mæðgurnar upp í fjall með Pollaling, sá varð nú glaður að fá að hlaupa laus út um mela og móa Smile Svo splæsti ég í kaffikönnu, svona sem lagar einn eða tvo bolla, geðveikt gott kaffi, enda er ég búin að þamba svo mikið kaffi síðan að ég kom heim að ég er bara alveg ga ga, nei jók ég er nú bara aðeins búin að testa þetta, fékk mér náttla heilsusúkkulaði meðWink Viljiði spá, heilsusúkkulaði! hversu steiktur getur maður verið,,Whistling Það var alla vega hjá heilsuvörunum, sykurlaust og sonna. Gott að trúa stundum því sem maður vill trúa, ég er nokkuð viss um að þetta súkkulaði er alveg bráðhollt.

Annars er ég búin að vera í einhverju stríðnisskapi í dag, plataði samt engan af því að ég mundi ekkert eftir að það væri 1. Apríl nema fyrst í morgun, fékk hins vegar óstöðvandi hláturskast upp í fjalli bara svona upp úr engu, ég hló svo mikið að tárin láku niður kinnarnar í stríðum straumum og maskarinn með, ég var að reyna að tjá mig eitthvað um hvað mér fyndist svona drepfyndið, en hló svo mikið að Svandís mín skyldi ekki orð af því sem ég sagði, sem kom svo sem ekki að sök því henni hefði örugglega ekki þótt það fyndið, annað mál hefði hún systa mín verið með mér, við tvær getum nebbilega hlegið að sumu sem engum finnst fyndið nema okkur tveim, held það hafi eitthvað með það að gera að við erum næstum því tvíburar, það munar bara 11 mánuðum. En hláturinn lengir lífið, eða hláturinn lengi lifi LoLGrinLoLGrinToungeSmile

Góða nótt, sofið rótt og verið góð við hvert annað InLove 


Öllu er trúnadi.

Ég hefði alveg trúað þessu ef páfanum hefði ekki verið blandað í málið, það er bara einhvernvegin þannig að fréttir utan úr heimi eru oft á tíðum svo stórfurðulegar, þess vegna er erfitt að átta sig á kvort um Aprílgabb sé að ræða, eður ey. Heimurinn er orðinn svo skrítinn, þannig að við verðum bara að bíða og sjá svo hvað er gabb og hvað er ekki gabb.
mbl.is Í mál vegna draugagangs í glæsivillu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Duga ekki fyrir einu pari.

Launin duga ekki fyrir einu Nike skópari, alveg ótrúlegt hvað þessar vörur eru hrikalega dýrar. Ekki er það launakostnaðurinn sem veldur, það er nokkuð ljóst.
mbl.is Starfsmenn Nike í Víetnam krefjast hærri launa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háleit markmið

Sumir hafa háleit markmið....... Undecided En er þetta ekki full langsótt köllun eða hugsjón ? Eða hvað ætli hann fái út úr því að láta minnast sín fyrir að setja Ísland á hausinn.... Hann fékk nú svo sem heilmikla hjálp frá okkur sem hér búum og erum búin að spreða og spreða í neyslubrjálæðisvímu í áraraðir W00t

En ekki mikið lengur, nú er sko heldur betur komið að skuldadögunum Crying

Allt á niðurleið, nema náttla skuldirnar og vöruverðið Gasp 


mbl.is Vildi gera Ísland gjaldþrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert rennerí á klóið hér.

Ja há! Það yrði manni dýrkeypt að fá asíska skítapest þarna upp í háloftunum Frown 

Og hvað ef maður væri nú skítblankur? Þá yrði maður sjálfsagt bara að láta allt gossaGasp

Náttla best að vera ekki á stanslausu renneríi á dolluna Errm

Kanski þetta sé svo bara Aprílgabb LoL


mbl.is Salernisgjald hjá Ryanair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hallæriskeppni

Ekki get ég sagt að ég sé spennt fyrir þessari hallæriskeppni, ég missti áhugann eftir að gleðibankinn, hinn eini sanni sló ekki í gegn í Noregi.  Ég og æskuvinkonur mínar sátum saman laugardagskvöldið 3 mai árið 1986, við vorum í alvöru talað 100% vissar um að ICY flokkurinn væri að fara að taka þetta með miklum yfirburðum, en annað kom nú heldur betur á daginn, 16. sæti, takk fyrir. Vonbrigði okkar áttu sér engin takmörk, við bara sátum sem lamaðar, og hneyksluðumst mikið yfir smekkleysi Evrópuþjóða. Ég hef hreint ekki borið mitt barr allar götur síðan, þannig að ég legg mig ekki fram um að fylgjast sérstaklega með keppninni eftir þennan örlagaríka dag í mínu lífi, þetta er líka eini dagurinn og kvöldið sem ég man greinilega, eftir að Íslendingar fóru að taka þátt, eftir að við vinkonrnar höfðum huggað hvor aðra lá leið okkar í Þórskaffi þar sem við svo drekktum sorgum okkar fram á nótt. Crying
mbl.is Vonir og væntingar í Evróvisjón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skiljanlega

Skiljanlegt að blessaðir ríkisbubbarnir vilji gera vel við litlu börnin sín, en fyrr má nú aldeilis fyrr vera, hestar fyrir hvítvoðunga og litasérfræðingur, mér finnst hins vegar stórsniðugt að ráða til sín nuddara og örugglega eitthvað sem á eftir að gera litlu krílunum gott. Ekki að manni komi neitt persónulega við svo sem, bara svona týpísk öfund í minni Whistling


mbl.is Dýrar barneignir hjá Lopez og Anthony
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misheppnaðir listamenn.

Ég er svona að spá í hvort veggjakrotarar svo kallaðir eru bæði samvisku og siðlausir, að leyfa sér að skemma annarra eignir, bíla, fasteignir og bara það sem verður á þeirra vegi. Ekki eru þetta ólánsamir fíkniefnaneytendur í leit að verðmætum, svo þeir eigi fyrir næsta skammti, hvaða lið er þetta eiginlega? Og hvað ætli þau hafi út úr því að skemma eigur fólks sem þau jafnvel vita ekki einu sinni nein deili á? Alveg ótrúlega undarlegar hvatir sem hrjá þessa misheppnuðu listamennCrying
mbl.is Veggjakrotsfaraldur í Hveragerði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg dæmigert.

Alveg í anda ríkisstjórnarinnar að spara akkúrat þarna, dæmigert fyrir hana. Þvílík öfugþróun að heilbrigðisstarfsfólk hafi tæplega efni á að starfa í sínu fagi, þetta er einmitt fólkið sem að mínu mati ætti að hafa hæstu launin.
mbl.is Sparnaðaraðgerðir vega að þjónustu Landspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband