Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Hundar er trygglyndustu vinirnir.

Þefskin hunda er lygilega næmt, það  er hundrað sinnum næmara en mannsins. Sá hluti heilans sem stjórnar lyktarskyni hundsins er mun stærri en í manninum. Hundar hafa líka mjög góða heyrn og heyra hljóð sem eru langt utan við heyrnarsvið mannsins, þeir geta líka lokað innri hlustinni til að verja sig fyrir truflandi hávaða sem er náttla bara brilljant. Bragðskyn þeirra er aftur á móti lélegt, ef þeir eru ekki fóðraðir og verða að finna sér æti sjálfir, éta þeir nánast allt sem að kjafti kemur. Hundar eru endalaust trygglindir, við þurfum að endurgjalda tryggðina með umhyggju, öryggi og virðingu. Það er ekki erfitt að elska hundinn sinn, hundar eru í eðli sínu einfaldar skepnur, þakklátir fyrir að fá mat, heimili og ást, þeir eru algjörlega lausir við að gagnrýna okkur mennina og sýna okkur takmarkalausa tryggð.

Vá! þetta átti ekki að verða svona langt, það er bara svo gaman að skrifa um hunda, en hundarnir sem fundu litla barnið hafa mjög sennilega verið svangir, enda flækingshundar sem enginn lét sér annt um né sá um að gefa þeim að éta, trúlega hefðu þeir étið barnið ef engin hefði orðið þeirra var, það hefðu þeir ekki gert af grimmd heldur af hungri, hundar eru upprunalega veiðidýr og hópdýr, sá sterkasti ræður, þeir virða yfirráð þess sterkasta í hópnum "fjölskyldunni" Enda er úlfar forfeður hundanna.

Grimmdin sem varð þess valdandi að litla barninu var einfaldlega hent á leðjuhaug til þess að deyja af hungri á kvalafullan hátt, er mannanna verk.Eitthvað er það sem fær mæður til að henda börnunum sínum, eitthvað sem við ekki skiljum, grimmd manneskjunnar, örvænting mæðranna hlýtur að vera ólýsanleg fyrst hún er sterkari en móðurástin, það er alla vega eitthvað hrikalega brenglað í samfélagi þar sem svona lagað er bara algengt.

Jæja nóg komið.


mbl.is Flökkuhundar björguðu lífi barns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skaphundur

Það er eins gott að standa ekki í vegi fyrir svona skaphundum, sem þurfa að komast leiðar sinnar hvað sem tautar og raular. Trúlega hefur sá geðilli tafist mun lengur fyrir tiltækið.

Annars ég að fara í skólann á eftir
og hann er sko í Reykjavíkinni,
þannig að kannski það reyni á
mína stóísku ró ef ég lendi
í trukkabílstjórunum.

Við sjáum hvað setur Whistling


mbl.is Missti stjórn á skapi sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður.

Kannski ég taki Færeyinginn til fyrirmyndar,
"næst" þegar ég verð stoppuð fyrir of hraðan
akstur, og sega: Ykkur var nær að láta mig ganga
lausa, ég geri þetta alltaf aftur,
ég má bara ekki undir nokkrum
kringumstæðum ganga lausW00t

mbl.is „Ég á ekki að vera með ökuréttindi"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er?

Ég segi nú bara ef þetta er betri fóturinn,
hvernig er þá hinn?LoL

Teprulegur dans

Freker teprulegur dans finnst mér
dansherrann er miklu flottari
reyndar get ég nú ekki kallað
þetta dans hjá forsetanum
minnir meira á, nei annars ég vil ekki segja hvað.W00t

mbl.is Dansandi forseti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úps!

Úps! Kannski ég meigi eiga von á að mamma
taki af mér bílinn, löggimann tók mig nebbla
fyrir of hraðan akstur á dögunum hér á
Skaganum.

En svona í alvöru þá finnst mér frábært hjá
mömmunni að taka bílinn af stráksa
hann er greinilega ekki orðin nógu
þroskaður til að aka bíl.
Vonandi að hann læri af þessu
og átti sig til hvers bílar eru
áður en það verður of seint.


mbl.is Tók bílinn af syninum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glætan!

Glætan! Er þetta nú nýjasta dillan?
Ekki ætla ég að fjárfesta í þessu
drasli, fatta ekki alveg tilganginn.
Mér er sem ég sjái krakkana mína
nenna að troða iphoninum ofan
einhverja fáránlega
kjöthulsu.Whistling

mbl.is Kjöthulstur fyrir iPod vinsælt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Velferðarþjófélag hvað?

Alveg er þetta týbískt fyrir velferðaþjóðfélagið okkar, þegar kemur að mannlegu þáttunum er allt í klessu. Við getum ekki boðið börnunum okkur upp á sómasamlegt athvarf hvað þá meira, ekki getum við heldur boðið eldri borgurum upp á viðunandi kjör, ekki heldur öryrkjum. Hvert er við eiginlega að stefna? Ef einhverstaðar á að spara er ráðist á þessa hópa, við tímum ekki að borga fólkinu sem annast börnin okkar mannsæmandi laun, og ekki tímum við heldur að borga fólkinu sem annast okkur þegar við erum sjúk nema smánarlegt smotterí.

Hvernig væri nú að ráðamennirnir tæku í eitt skipti fyrir öll hausinn út úr rassgatinu á sér og færu að hlusta á fólkið í landinu, en væru ekki að dandalast út í löndum á okkar kostnað í tíma og ótíma?

Ég er orðin svo hund andskoti leið á þessum silkisokkum sem hér stjórna að ég veit bara ekki hvað......W00t 

Vakniði þarna vankar og hunskist til að gera nú einu sinni eitthvað af viti.


mbl.is Mjög bágborin aðstaða barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki er hún gæfuleg

Ekki er hún nú gæfuleg frú Hillary Clinton, það er ekkert verið að spara stóru orðin, bara tilbúin í að útríma heilli þjóð. Almáttugur! vonandi kemst þetta stríðsóða glæpakvendi ekki á forsetastól. Það virðist vera heilagt takmark hjá henni eins og mörgum löndum hennar að ráðast á Íran. Mér finnst hún ekki hafa neitt með völd að gera þessi manneskja.

Ég vil að Íranir viti, að ef ég verð forseti munum við
ráðast á Íran.
Ekki beint friðelskandi kona þarna á ferð.
Mér verður bara illt af tilhugsuninni einni
um að hún komist til valda.

Hún ætti að heimsækja Guantanamó fangabúðirnar
sem landar hennar komu á laggirnar, kannski væri
það ekki til neins, ekki víst að það myndi
hreyfa neitt við henni.. Ætli það sem fram fer
þar sé ekki einmitt það sem hún vill?
Oj bara svona kellingar...Sick


mbl.is Clinton hótar Írönum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samkeppni er alltaf af hinu góða.

Ekkert nema gott að fá samkeppni á markaðinn, eitthvað verður líka að fara að ske í húsnæðismálunum. Ég verð að viðurkenna að ég er ekki mjög talnaglögg manneskja svo ég hef ekki hugmynd um hvort þetta er eitthvað meiriháttar þegar til lengdar lætur. Mér finnst soldið skrítið að eiga jafnvel að fara að taka lán í evrum, eitthvað hálf asnalegt þegar að maður fær nú bara útborgað í einhverjum löngu úreltum krónum.


mbl.is Íhugar að bjóða óverðtryggð íbúðalán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband