Mæðradagurinn!

Mæðradagurinn! Er það ekki annars?
Ég held barasta að ég afneiti mínum afkvæmum frá og með þessum mæðradegi, hér ligg ég alein upp í mínu yndislega rúmi, ekki kannski alveg ein, ég er náttla með tölvuna og útvarpið þar sem Valdís auglýsir blóm hægri, vinstri.
Hvað hefur eiginlega klikkað í uppeldi þessara barna minna?
Ég sem var vöknuð fyrir allar aldir, bjóst náttla við kaffi og með því upp í rúm, en váááá Frown ég er enn að bíða og ekki eru þessir grísir mínir farnir að rumska, hvað þá annað.
Ég hef ákveðið að hreyfa mig ekki hænufet úr bælinu fyrr en ég hef fengið kaffi, köku og blóm......Best að halda áfram að sofaSleeping
Verst að börnin mín lesa ekki bloggið mitt, þannig kannski vita þau ekkert hvaða DAGUR er í dag.W00t Þá bíð ég bara þangað til þau fatta þaðWizard

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband