Gleðileg jólin

Gleðileg jólin! Aldeilis búin að hafa það gott, borða mikið og sofa mjög mikið, það er það sem ég hef aðallega gert undanfarna tvo dagaTounge Já já bara tóm sæla og hugguleg heit í faðmi fjölskyldunnar. Í fyrsta sinn í mörg ár erum við ekki byrjuð að spila, ekkert í gærkvöldi og ekkert í dag, við vorum öll svo þreytt í gærkvöldi og ég er búin að vera í náttfötum í allan dag, svo næs eitthvað. Á morgun kemur öll stórfjölskyldan í mat til mín, " eða sko það sem ég kalla stórfjölskylduna mína " en það er mín stysta, synir hennar tveir og kærustur, mamma og pabbi, börnin mín, tengdadóttir og barnabarn. Það eru nú reyndar fleiri sem tilheyra fjölskyldunni, en sambandið er ekkert til að hrópa húrra fyrir og kærleikar afar takmarkaðir líka. Jam jam svona er nú bara lífið.

Góða nótt og sofið rótt. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband