Afmælisogstúdentadagar

Afmælisbarn dagsins 21. Desember er enginn annar en Haukur Leó Sigurðsson sonarsonur minn Wizard 

Afmælisbarn dagsins 22. Desember er svo enginn annar en Sigurður Már Sturluson frumburðurinn minnWizard

Sigrún Hauksdóttir útskrifaðist sem stútent úr Fjölbraut á Akranesi 21 Desember og er enginn önnur en tengdadóttir mín Wizard

Enn og aftur til hamingju öll InLove

Annars eru víst jólin bara á næsta leiti með öllum sínum dásemdum. Ég klikkaði skverlega á jólakortonum þetta árið, fattaði ekki alveg hvað er stutt í hátíðina, verð bara snemma í kortagerð að ári......segi þetta svo sem alltaf..........

Bakaði pínu í kvöld, keypti deig ekkert smá patent, pakka kanski inn á morgun, á reyndar eftir að kaupa tvær gjafir, geng í málið á Þollák, svo á ég náttla eftir að kaupa saltfiskinn, börnin eru af pizzukynslóðinni en við hjónin úðum í okkur saltfisk, borðum ekki skötu.....ojj ojj ojjj.......samt er bóndinn rammvestfirskur í báðar ættir og fæddur og uppalinn á Flateyri og ég vestfirsk í móðurætt en alin upp í höfuðborginni......

Jæja góða nóttSleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband