Jibbý!

Ég var ein af þeim sem skutlaði mér í biðröð í dag, hún var reyndar mjög stutt, við erum nebbla með svo margar bensínstöðvar hérna á SkaganumTounge 

En okey ég fyllti náttla drossíuna, og svei mér þá ég góndi svo mikið á þessar fáu hræður í röðinni, að úpps! Sull sull, já ég sullaði bensíni út á allan fína bílinn minn, en það gerði svo sem ekki mikið til, bensínið var hvort sem er svo billegt í dag, nú svo brunaði ég eins og leið liggur upp í Borgarfjörð, bara svona í útsýnisbíltúr, datt meira að segja í hug að halda áfram alla leið til Akureyrar. En hætti við á síðustu stundu.

Svona var ég nú ánægð með bensínlækkunina,
já ég veit, það þarf ekki mikið til að gleðja mitt litla hjarta. Whistling


mbl.is N1 veitir 25 króna afslátt á eldsneytisverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband