Of afkastamikill.

Ja há! Það skyldi þó aldrei vera að Sigursteinn hafi verð of afkastamikill og duglegur, hans skarð verður vandfyllt, þetta uppþot er svo sannarlega vatn á myllu ráðamanna. Þeir eru því miður fáir formennirnir sem starfa af slíkri hugsjón og Sigursteinn hefur gert. Hann kom meðal annars geðsjúkum út úr skápnum ef svo má að orði komast, alla vega hafa fordómarnir eitthvað minnkað gagnvart þeim, þó enn vanti mikið upp á. Ég vona bara af öllu hjarta að deilurnar innan ÖBÍ, leysist sem allra fyrst. ég held að ÖBÍ hafi alls ekkert efni á svona vandræðagangi, einnig held ég að við höfum ekki efni á að missa Sigurstein Másson.
mbl.is Öryrkjabandalagið missir máttinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hofy sig

Já er það? Ég þekki hann ekkert persónulega, mér finst hann hafa verið að standa sig vel, en við verðum bara að vona að þetta fari allt vel.

hofy sig, 16.1.2008 kl. 10:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband