Pennastokkur læknir
8.1.2008 | 10:10
Alveg gæti ég trúað honum syni mínum til að gera eitthvað svona, alla vega ef hann teldi það virka. Svei mér þá, hann væri sko til í að leggja ansi mikið á sig til að sleppa við skólann. Pennastokkur læknir hefur verið notaður óspart á undanförnum árum, þannig að hann er orðinn hálf þreyttur og ótrúverður. Ég klikkaði á hvenær skólinn ætti að byrja núna eftir jólafríið, og hélt að hann ætti að byrja á mánudaginn en ekki á föstudaginn, dreingstaulinn var nú ekki að leiðrétta mömmu sína, heldur tók bara þátt í gleymskunni þó hann vissi pottþétt betur. En jamm svona er nú skólinn fo.... ömurlegur að hans sögn. Annars gat ég ekki annað en hlegið að þessum tíu ára gutta, þvílíkt hugmyndarflug! líma sig barasta fastan
Límdi sig fastan við rúmið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.