Sum störf kalla á heilasjálfstýringu.
25.4.2008 | 20:45

Eða það held ég, eins og til dæmis að vera öryggisvörður í verslun og hafa þann starfa einan að standa upp á endann og góna út í loftið. Eða þá að standa með auglýsinga skilti í miðju Oxfordstreet allan guðslangan daginn. Nú eða þá sonna lögga sem stjórnar umferðinni, að vera kassadama í Bónus, að vera gangavörður í skóla...og fullt fullt meira

![]() |
Leiðinleg störf setja heilann á sjálfstýringu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lúserar
25.4.2008 | 19:32
![]() |
Lögreglan eyddi gögnum af farsíma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bara mótmæla eikurru.
25.4.2008 | 19:03
Hopp og hí, það er bara gaman að lifa, eða er það ekki annars? Ungur piltur sagðist vara að mótmæla tilverunni, annar var að mótmæla háu bíóverði, og stúlka ein vildi aðallega mótmæla öllu, bara af því að það er svo ógislega gaman.
Jú jú áhrifin láta ekki á sér standa, ungmenni eru oft á tíðum dáldið áhrifagjörn, þau eru ekki síður ævintýragjörn og sækja í að vera þar sem stuðið er og öll vitum við hvar mesta fjörið hefur verið síðustu dagana.
Þá er um að gera að taka bara þátt í partýinu og hafa gaman af,
skiptir ekki nokkru máli hverju er verið að mómæla, það er sko algjört aukaatriði, það er örugglega ekkert vitlausara að mótmæla háu bíóverði, nú eða þá bara tilverunni yfir höfuð..
![]() |
Ungmenni tefja umferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég myndi tryllast
24.4.2008 | 15:43
Eftir stóðu svo rústirnar af húsinu og rottur hreiðruðu um sig og höfðu það bara gott. Eitt sinn kom ein RISA stór ROTTA í heimsókn til konu einnar sem bjó við hliðina á rústunum, og það skipti engum togum að kellan bara réðist á nágrannan með skó að vopni æpandi og berjandi vesalings dýrið, ég varð svo gjörsamlega miður mín yfir grimmd konunnar, að ég gat aldrei litið hana réttu auga eftir þetta atvik. Rottukvikindið átti samúð mína alla, en það var þá....

![]() |
Rottur í Réttarholti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gleðilegt sumar
24.4.2008 | 15:23
Gleðilegt sumar.
Nú er það komið.. Jibbý
Hér verður sko líka grillað í kvöld alíslenskar lambasneiðar, nammmi namm.
Já ég er alveg í klikkuðu sumarskapi, enda ekki annað hægt, hann pápi minn keypti dýrindis lambasneiðar sem við ætlum að grilla og við ætlum líka að borða þær...
![]() |
Vor í lofti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kjánar!
24.4.2008 | 15:17
Svei mér þá alla mína daga! Er þetta ekki komið út í einhver meiriháttar kjánalæti? Alla vega fékk ég nettan kjánahroll yfir sjónvarpsfréttunum í gærkvöldi, mér finnst bæði mótmælendur og löggan haga sér eins og fullkomnir hálfvitar. Á tímabili hafði ég á tilfinningunni að ég væri að horfa á afspyrnu lélega bíómynd.
Þvílíkt stjórnleysi á báða bóga...Ég held ég tjái mig ekki frekar um þessi skrípalæti..
![]() |
Mættir í skýrslutöku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Rússnesk rúlletta.
24.4.2008 | 15:02

![]() |
Sofnaði í blóðsýnatökunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Af hverju ekki hvít?
23.4.2008 | 09:03
Af hverju ekki hvít handklæði?
Ætli hann sé eitthvað fordómafullur? Veit ekki, en ég þykist vita að gráðugur er hann, hámar í sig fimm flottar máltíðir á dag,
Skyldi dagurinn vera eitthvað lengri hjá honum en mér
eða kannski hann sé svona fljótur að borða,
eða þá að hann gerir ekkert annað en að borða,
og þeyta skífum þess á milli.
![]() |
Plötusnúðurinn Carl Cox með lengri kröfulista en Tommy Lee |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ótrúlegt!
23.4.2008 | 08:48
Alveg merkilegt að í landi þar sem það ku vera daglegt
brauð að bera út börn "stúlkubörn" skuli vera rekin
sæðisbanki, og að einhver skuli hafa fyrir að ræna hann.
Útsala á Indversku sæði aðeins 500 kall per skammtur.
![]() |
Sæðisþjófur gripinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hundar er trygglyndustu vinirnir.
23.4.2008 | 08:40
Þefskin hunda er lygilega næmt, það er hundrað sinnum næmara en mannsins. Sá hluti heilans sem stjórnar lyktarskyni hundsins er mun stærri en í manninum. Hundar hafa líka mjög góða heyrn og heyra hljóð sem eru langt utan við heyrnarsvið mannsins, þeir geta líka lokað innri hlustinni til að verja sig fyrir truflandi hávaða sem er náttla bara brilljant. Bragðskyn þeirra er aftur á móti lélegt, ef þeir eru ekki fóðraðir og verða að finna sér æti sjálfir, éta þeir nánast allt sem að kjafti kemur. Hundar eru endalaust trygglindir, við þurfum að endurgjalda tryggðina með umhyggju, öryggi og virðingu. Það er ekki erfitt að elska hundinn sinn, hundar eru í eðli sínu einfaldar skepnur, þakklátir fyrir að fá mat, heimili og ást, þeir eru algjörlega lausir við að gagnrýna okkur mennina og sýna okkur takmarkalausa tryggð.
Vá! þetta átti ekki að verða svona langt, það er bara svo gaman að skrifa um hunda, en hundarnir sem fundu litla barnið hafa mjög sennilega verið svangir, enda flækingshundar sem enginn lét sér annt um né sá um að gefa þeim að éta, trúlega hefðu þeir étið barnið ef engin hefði orðið þeirra var, það hefðu þeir ekki gert af grimmd heldur af hungri, hundar eru upprunalega veiðidýr og hópdýr, sá sterkasti ræður, þeir virða yfirráð þess sterkasta í hópnum "fjölskyldunni" Enda er úlfar forfeður hundanna.
Grimmdin sem varð þess valdandi að litla barninu var einfaldlega hent á leðjuhaug til þess að deyja af hungri á kvalafullan hátt, er mannanna verk.Eitthvað er það sem fær mæður til að henda börnunum sínum, eitthvað sem við ekki skiljum, grimmd manneskjunnar, örvænting mæðranna hlýtur að vera ólýsanleg fyrst hún er sterkari en móðurástin, það er alla vega eitthvað hrikalega brenglað í samfélagi þar sem svona lagað er bara algengt.
Jæja nóg komið.
![]() |
Flökkuhundar björguðu lífi barns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)