Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Letilíf

Hoj, hoj! Þá er nú lítið annað að gera en að blogga, konan rúmliggjandi og sonna, en vonandi ekki lengi, enda nenni ég ekki að liggja í rúminu þegar ég er svona hress samt betra að gera eins og læknirinn minn fyrirskipar, það er náttla best fyrir mig sjálfa þegar öllu er á botninn kvolt Whistling 

Undur og stórmerki áttu sér stað í gærkvöldi hér á Holtinu, ég sem sagt horfði á heila friends seríu, ótrúlegt afrek hjá mér, ég gerði meira að segja ekkert annað á meðan, bara horfði og horfði, endurtek glápið örugglega aftur í kvöld, finn mér eitthvað gott stöff að horfa á, nóg er nú til af myndum á heimilinu sem ungarnir mínir eiga, held svei mér þá að ég hafi sjálf aldrei keypt mér mynd, svo er annað og stærra safn til hjá frumburðinum svo nóg verður hægt að glápa á kvöldin, efast samt stórlega um að ég glápi mörg kvöld í röð ef ég þekki sjálfan mig rétt.

Annars hef ég það alveg geggjað gott, er bara eins og prinsessan á bauninni, sný krökkunum í kringum mig og dingla mér liðlangan daginn, ekki amalegt það sko.

Bæ, bæ þangað til næstLoL


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband