Hrikalegur hraðakstur

Hrikalegur þessi hraðakstur á þjóðvegum landsins, ef að maður heldur sig á löglegum hraða verða margir óþolinmóðir og rjúka fram úr þar sem ekki má, ég lendi mjög oft í þannig aðstæðum, og í Hvalfjarðagöngunum keyra allt of margir allt of hratt, þjóta fram úr manni og gefa hressilega í á milli myndavélanna, það mætti efla löggæsluna enn betur í göngunum og hækka sektirnar upp úr öllu valdi, ég fékk sekt fyrir þremur árum fyrir of hraðan akstur í göngunum og hef sko passað mig síðan, þegar við þurfum að opna veskið þá kannski pössum við okkur betur framvegis.
mbl.is Lögreglan á Selfossi stöðvaði tvo ökumenn á 134 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband