Kreppa
12.4.2008 | 13:46
Þetta er sko sönnun um að KREPPAN sé komin, eitthvað verður fólk til bragðs að taka í þessu heilvítis fátækrasamfélagi okkar, henni gæti hafa vanhagað um eitt og annað, kannski er hún öryrki eins og ég og getur þar af leiðandi ekki stundað líkamlega erfiðisvinnu, nú eða þá að hún hafi misst vinnuna vegna hárrar elli, og þá er ekki um margt að velja, 17 ár í ellistyrkinn og allt í voða. Of gömul til að bjarga sér á elstu atvinnugreininni, mar bara verður kjaftstopp, hvað á fólk sem hvergi fittar inn í samfélagið eiginlega höfði sínu að halla, eina ráðið er að komast í frítt fæði og húsnæði hjá ríkinu og hún gerði svo sannarlega sitt besta til þess.
Fimmtug í fíkniefnasölu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hún er nú varla komin yfir síðasta söludag ef þú meinar það. Ég sá eini sinni Jerry Springer show og þar voru portkonur á áttræðisaldri og sögðust hafa í sig og á.
Frikkinn, 12.4.2008 kl. 14:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.