Bara eitthvað bull
26.3.2008 | 17:36
Heil og sæl. Ég er að setja neglur á mig sjálfa og ákvað að pikka eitthvað meðan ég er í lampanum, litla ömmumúslan mín kemur í næturpössun á eftir. Svo það verður gaman á Holtinu í kvöld Annars er bara allt í gúdden, allir nokkuð spakir á bænum og léttir í lund. Við mæðgur ætlum að kokka taco ofan í okkur, en örverpið leggur slíkt sér ekki til munns, svo hann mun fá ORA fiskbollur með karrýsósu, já hann hefur löngum haft undarlegar matarvenjur, drengurinn sá Tími til að hætta núna og hunskast í þvottahúsið og sonna. Bæ bæ
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.