Hverjir eru hryðjuverkamenn?

Hvað er unnið með því að jafna heimili mannsins við jörðu?
Því ekki að refsa manninum og láta börnin hans og konuna hans í friði? Nær væri að aðstoða fjölskyldu hans sem ekki hefur gert neitt af sér? nema þá að vera fjölskylda hans sem virðist gera þau að glæpamönnum, ég þoli ekki svona óréttlæti, það er því miður allt of oft sem menn tapa sér af hermdarþorsta og hefna sín á saklausu fólki, ég get ekki séð að forsætisráðherra og varnarmálaráðherra Ísraels séu eitthvað skárri en réttir og sléttir hryðjuverkamenn, bara sorry......Ekki skrítið að allt sé í rugli og hinn almenni borgari beri ekki mikla virðingu fyrir mannslífinu, ekki eru skilaboð yfirvalda til fyrirmyndar í þessum heimshluta.
Réttlætiskennd er greinilega ekki hátt skrifuð hjá þessum gaurum, drepa og skemma það er það sem þeir kunna og hafa gaman af, því miður. 

mbl.is Hús Palestínumanns jafnað við jörðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er hrikalegt ástand sem fólk í þessu landi býr við. Það sorglegasta við þetta allt er að yfirvöld í Ísrael gera allt til að viðhalda þessu ástandi, viðhalda hatri araba á sinni þjóð og kynda undir "hryðjuverk" palestínumanna. Yfirvöld í Ísrael halda ekki bara palestínumönnum niðri heldur kvelja þá skipulega. Þessu má líkja við að setja pott á hellu á fullum straumi og reyna að halda lokinu þéttu. Þrýstingur vex og vex sem mun leiða af sér að potturinn springur. Þeir halda að þegar vestrænar þjóðir (að bandaríkjamönnum undanskildum) vilja tilslökun þá meini þeir að taka lokið af sem er rangt. Við viljum að slökkt sé á hellunni!!! Það er hægt með því að hætta þessum refsiaðgerðum gegn almennum palestínu-borgurum, auka velsæld þeirra og frelsi. Þannig verða færri árekstrar þessarra þjóða og tilefni "palestínskra hryðjuverkamanna" færri.

Ég set hryðjuverkamenn innan gæsalappa þar sem þeir eru að finna meðal beggja þjóða. Mismunurinn er að ísraelsmegin eru þeir opinberir starfsmenn, s.s. hermenn, lögreglumenn og valdamiklir stjórnmálamenn.

Þarna verður aldrei friður fyrr en slökkt er á hellunni. Svo má fljótlega taka lokið af. Lausnin er einföld verkfræði og sterkur vilji.

Ég var samt að velta því fyrir mér ef maðurinn byggi í blokk. Ætlar þeir þá að rífa alla blokkina??? 

Hafsteinn Elvar Jakobsson (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 08:05

2 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Svona til að svara síðustu spurningunni hjá þér Hafsteinn þá gerður þeir þetta með þeim hætti þegar þeir ástunduðu það að rífa heimili sjálfsmorðssprengjumanna á sínum tíma. Ef þeir bjuggu í blokk þá rifu þeir alla blokkina. Það gilti líka einu hvort þeir byggju í eigin húsi eða leiguhúsnæði. Húsið var rifið.

Sigurður M Grétarsson, 3.7.2008 kl. 10:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband