Kósý kvöld

Ég átti mjög svo kósý kvöld í kvöld Smile Medium nautavöðvi nammi namm, mín yndislegu börn, barnabarn tengdabarn og eiginmaður sátum við kertaljós og snæddum sem sé naut með öllu tilheirandi sem eiginmaðurinn eldaði, út af því að hann er miklu flinkari að sansa naut heldur en ég. Svo bara almennt appslevelsi út kvöldið InLove 

Ég er eitthvað hrikalega löt við skriftir þessa dagana eins og sést, svo er ég líka búin að vera frekar lasin, sóragigtin alveg í essinu sínu um þessar mundir Pouty Það styttist í næstu læknisskoðun og bind ég vonir við að eitthvað sé máske hægt að gera við t.d. mína veiku löpp. Annars allt í góðum gír Tounge best að pilla sig í bælið og horfa á eina mynd eða svo.

Góða nótt og sofið rótt. Gangið hægt inn um gleðinnar dyr elskurnar mínar. kærleiksknús á liðið. HeartHeartHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband