Sól og sæla

HoHola! Jæja langt frá síðasta bloggi, ég hef ekki alveg verið að nenna þessu í sumar, bara verið að njóta þess að gera ekki neitt, dingla mér í útlöndum með allri fjölskyldunni og sonna/ Bara endalaust gaman, nú er ég hins vegar mætt í bloggheima aftur endurnærð á líkama og sál Wink Já sumarið er Tíminn) ekki spurning" en alveg er tað týpískt með mig, ég hef haldið því stöðugt fram að sólin og hitinn á suðrænum slóðum sé bara eitthvað sem sé mínum kroppi sé lífsnauðsin, og þannig var það hér áður og fyrr, en ekki lengur því er nú ver. Ég er sum sé nýkomin heim frá Spáni eftir tæpa mánaðardvöl, ekki mátti það nú minna vera þar sem ég á í hlut "það vita þeir sem mig þekkja alltaf örstutt í öfgarnar" ég sá um að bóka mig og mína í sólina og valdi þá náttla heitasta tímann og best að vera nú sem allra lengst, ekki svo að skilja að ég hafi verið að brenna mig í fyrsta sinn á að rjúka út á heitasta tímanum, sei sei nei ég var svo sem búin að því áður, það var bara svo rosalega langt síðan að ég var búin að steingleyma hvað það getur verið niðurdrepandi að reyna að gera eitthvað í 40° stiga hita og jafnvel enn verra að gera ekki neitt. En svona er ég nú einu sinni! Og það var yndislegt að vera með allri familíunni sinni í heilan mánuð ekki að gera neitt annað en að skemmta sér. Þetta var nú líka verst frá svona 12-16 eftir það voru okkur allir vegir færir, við flökkuðum um á bílaleigubílum"með loftkælingu" skoðuðum eitt og annað, versluðum SMÁ og nutum þess að vera til. Ég var samt illa haldin er við komum heim, handleggirnir mínir eru útbitnir sem hefði svo sem verið í lagi ef ég hefði ekki fengið ofnæmi í bitin, svo ég hef verið á sterkum lyfjum og með sterakrem og ýmislegt annað síðan ég kom heim fyrir viku síðan, núna first er mér að hætta að klæja enda er eins og ég hafi lent í villiketti, handleggirnir eitt svöðusár, nóg um það haustið legst bara dúndurvel í mig, eða mér finnst alla vega komið haust og tek því fagnandiTounge Jæja knús á ykkur öll og njótið þess að vera til.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SigrúnSveitó

Gaman að "sjá" þig aftur í bloggheimum

Ljós&kærleikur... 

SigrúnSveitó, 20.8.2007 kl. 16:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband