Lífsins gæðum er misskipt

Mér varð illt í hjartanu eftir kompásþáttinn í gærCrying Þvílík eymd og yfirþirmandi sársauki sem sum mannanna börn búa við.

Hvernig ætli að það sé að horfa upp á barnið sitt deya úr hungri?

Hvernig ætli það sé að láta barnið sitt í hendur bláókunngs fólks í von um betra líf því til handa?

Hvernig ætli að það sé fyrir barn að horfa upp á foreldra sína deya hægt og kvalarfullt?

Hvernig ætli það sé fyrir barn að eiga engan að í öllum heiminum?

Hvernig ætli að það sé fyrir barn að búa á götunni innan um barnaníðinga og samviskulausa glæpamenn?

Mig skortir ýmindunarafl ! Ég get með engu móti gert mér í hugarlund hvernig þeim líður og það getur örugglega engin nema hafa reynt það sjálfur. það hlítur að teljast vansæmd og siðleysi mannkynnsins að svona lagað sé að gerast út um allan heim í dag. Við sem höfum allt af öllu erum sívælandi og óþolandi upptekin af sjálfum okkur, við erum svo fljót að gleyma í öllu neyslubrjálæðinu og alsnægtunum. Það væri ekki vanþörf á að hafa svona þátt á hverju kvöldi eftir fréttir, ég vildi óska að fréttamenn væru uppteknari af þessum mannana börnum. Mér fannst t.d. alveg fáránlega kjánalegt hvað mikið var gert úr brunanum í Lækjargötunni er ég þó aðdáandi gamalla húsa og verndun þeirra upp að vissu marki. Ég get samt ekki skilið hvernig á að vernda hús sem er brunnið til kaldra kola, ekki finnst mér heldur sagan af þessu húsi merkileg og því síður skemmtileg, þó Jörundur hafi búið þar og einhver pissfull lögga hafi dansað þarPolice Kanski það sé hin fræga menning okkar íslendinga sem menn vilja geta státað sig af að hafi farið fram í þessu stórmerkilega húsi undanfarin´misseri, þar sem sannir íslendingar hnöppuðust saman í biðröð til að fá að kaupa sér áfengi á uppsprengdu verði, verða sjálfum sér til skammar og öðrum til leiðinda. Já mikill er nú metnaðurinn og þjóðernisástin, það er átakanlegt að horfa upp á siðmenntað fólk klappa misvitrum menningarvitum sem allt vilja vernda"þó þeir hafi jafnvel ekki hugmynd um af hverju) lof í lófa Whistling Jæja nóg komið í bili bæjó spæjó.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Sæl Hófí. Ég sá þetta líka. Mikið dáist ég að manneskjunni henni Þórunni Helgadóttur.  Það er hægt að styrkja starfið á
http://www.abc.is/ABChjalparstarf/Upplysingarfyrirstudningsadila/Reikningarfyrirframlog/

Þorsteinn Sverrisson, 23.4.2007 kl. 22:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband