Hoj, hoj!

jæja þá er ömmumúsin farin frá ömmunni sinni, foreldrarnir komu heim í gær, þau komu færandi hendi og gáfu mér dvd spilara og tvær seríur af Reymond vini mínum, börnin mín eru alltaf að reyna að fá mig til að horfa á dvd, sem ég hef ekki gert mikið af, horfi ekki einu sinni á sjónvarpsdagskrána, en ég ætla sko að horfa á Reymond það er á hreinu. Ég er búin að vera í sporavinnu með sponsíu í allan morgun og er að spá í að skella mér upp í fjall með Polla rúsínu, hann er búin að vera svolítið illa haldin af afbrýðisemi út í Hauk Leó, sem er nú ekkert skrítið, prinsinn sjálfur. En ókey bæ.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband