Bara mótmæla eikurru.

Hopp og hí, það er bara gaman að lifa, eða er það ekki annars? Ungur piltur sagðist vara að mótmæla tilverunni, annar var að mótmæla háu bíóverði, og stúlka ein vildi aðallega mótmæla öllu, bara af því að það er svo ógislega gaman.

Jú jú áhrifin láta ekki á sér standa, ungmenni eru oft á tíðum dáldið áhrifagjörn, þau eru ekki síður ævintýragjörn og sækja í að vera þar sem stuðið er og öll vitum við hvar mesta fjörið hefur verið síðustu dagana.

Þá er um að gera að taka bara þátt í partýinu og hafa gaman af,
skiptir ekki nokkru máli hverju er verið að mómæla, það er sko algjört aukaatriði, það er örugglega ekkert vitlausara að mótmæla háu bíóverði, nú eða þá bara tilverunni yfir höfuð..LoL


mbl.is Ungmenni tefja umferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skaz

Gaman að sjá að krökkum finnst allavega ekki lengur hallærislegt að mótmæla held ég, þau láta þá allavega ekki taka sig eins og við "fullorðna" fólkið.

Skaz, 25.4.2008 kl. 19:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband