Þetta líst mér vel á

Þetta líst mér vel á, það er ótrúlega árangursríkt að losa sig við slæmar minningar,gremju og neikvæðar tilfinningar, það þarf reyndar ekkert að tæta þær niður, alveg nóg að eiga gott box sem við opnum bara til að láta í það allt sem neikvætt er í fari okkar eða það sem veldur okkur vanlíðan, loka því svo aftur og setja á sinn stað þar til næst. Það er líka gott að eiga annað box, ágætt að hafa það hjartalaga eða alla vega hafa það fallegt, það ættum við að opna til að ná okkur í góðar tilfinningar og jákvæðni. Ég hef tröllatrú á svona löguðu, það er eitthvað svo gott og jákvætt að hlutgera eða gera athafnir sem þessar táknrænar. Það virkar.
mbl.is Slæmar minningar tættar í sundur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Takk fyrir ábendinguna. Þetta hljómar eins og mjög góð hugmynd. Betri hugmynd en þetta með tætarann. Ég ætla að fá mér svona tvö box á nýja árinu.

Anna Karlsdóttir, 1.1.2008 kl. 17:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband