MA og PA.

Í morgun hringdi mín elskulega mamma og sagði mér að pabbi væri veikur og þyrfti að koma á heilsugæsluna. Ég brunaði auðvitað beint til þeirra og pabbi minn var sko greinilega orðin eitthvað veikur, mér leist bara ekkert á blikuna og vildi hringja á sjúkrabíl, en nei nei það vildi nú hann pabbi kallinn ekki heyra á minnst þó hann ætti erfitt með að standa, hann er ekki mikið fyrir að kvarta hann elsku pabbi minn. En hann var lagður inn til rannsókna og vona ég að hann þurfi ekki að liggja lengi inni, honum finnst hundleiðinlegt að vera á spítala. En það er hins vegar frábært hvað skjótt er brugðist við og allt staffið svo elskulegt hér á sjúkró. Heart Þetta hefur verið erfiður dagur, ég lenti í ömurlegu atviki í kvöld sem ég er ekki búin að vinna úr ég vona að ég verði búin að hreinsa það úr kollinum mínum á morgun, eftir góðan nætursvefn. Góða nótt og sofið róttSleeping Dúlls.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SigrúnSveitó

Sendi þér ljós og kærleika og vona að allt gangi vel, bæði með pabbann þinn og með að hreinsa úr kollinum.

SigrúnSveitó, 7.6.2007 kl. 23:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband